Fótbolti

Arnar Darri leikur sinn fyrsta leik með Lyn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Arnar Darri Pétursson,  markvörður hjá  Lyn.
Arnar Darri Pétursson, markvörður hjá Lyn. Mynd/Heimasíða Lyn

Arnar Darri Pétursson, 18 ára íslenskur markvörður hjá norska liðinu Lyn, mun spila sinn fyrsta opinbera leik með liðinu í norska bikarnum í kvöld. Lyn mætir Røa í 2. umferð bikarsins.

Arnar Darri er ekki eini Íslendingurinn í byrjunarliði Lyn því þeir Indriði Sigurðsson og Theódór Elmar Bjarnason eru einnig í liðinu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×