Fótbolti

Nutu ásta í miðjuhringnum

Elvar Geir Magnússon skrifar
Drpić í leik með Dynamo Zagreb.
Drpić í leik með Dynamo Zagreb.

Koma króatíska varnarmannsins Dino Drpić í þýsku úrvalsdeildina hefur heldur betur vakið athygli. Drpić er genginn til liðs við Karlsruhe á lánssamningi frá Dynamo Zagreb en þýska liðið er í harðri botnbaráttu.

Drpić er ekki mættur einn til Þýskalands því með í för er eiginkona hans, Playboy-fyrirsætan Nives Celsius. Parið komst í fréttirnar nýlega eftir að Celsius viðurkenndi að hún og Drpić hafi notið ásta á miðjum Maksimir-vellinum, heimavelli Dynamo Zagreb.

Nives opinberaði þetta í serbneskum sjónvarpsþætti þar sem hún var að kynna bókina sína, The Naked Truth. Forráðamenn Dynamo Zagreb og stuðningsmenn liðsins voru ekki sáttir við þetta. Nives hefur einnig sagt að draumur sinn sé að njóta ásta á þaki Santiago Bernabeu-vallarins, heimavallar Real Madrid.

Drpić á einn A-landsleik að baki fyrir Króatíu en hann hefur átt við spilafíkn að stríða og verið tíður gestur á spilavítum í Zagreb.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×