Fótbolti

CSKA náði í jafntefli á Villa Park

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vagner Love fagnar marki sínu í kvöld.
Vagner Love fagnar marki sínu í kvöld. Nordic Photos / Getty Images

CSKA Moskva og Aston Villa gerðu í kvöld 1-1 jafntefli í fyrri leik liðanna í 32-liða úrslitum UEFA-bikarkeppninnar sem fór fram á Villa Park í Birmingham.

Vagner Love kom CSKA yfir strax á fjórtándu mínútu leiksins með sínu níunda marki í keppninni í vetur. Vagner Love fékk boltann á eigin vallarhelmingi og kláraði dæmið sjálfur með laglegum spretti.

Aston Villa óx ásmegin eftir því sem á leið og átti Craig Gardner skot í slána áður en John Carew jafnaði metin fyrir heimamenn.

Ashley Young átti sendingu inn í teiginn sem Gardner fékk. Hann gaf boltann á Carew sem skoraði með laglegu skoti.

Gabriel Agbonlahor og Carew áttu svo báðir góð færi undir lok leiksins en niðurstaðan jafntefli og útlit fyrir spennandi viðureign í Moskvu eftir tvær vikur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×