Menning

Sjötugur Böðvar skrifar nýja bók

Fjöldi góðra vina Böðvars Guðmundssonar kemur að skipulagningu afmælisveislunnar sem fram fer í Íslensku óperunni 11. janúar.
Fjöldi góðra vina Böðvars Guðmundssonar kemur að skipulagningu afmælisveislunnar sem fram fer í Íslensku óperunni 11. janúar.
Blásið verður til mikillar veislu í íslensku óperunni 11. janúar þegar rithöfundurinn Böðvar Guðmundsson verður sjötugur. Fjöldi landsþekktra leikara mun lesa upp úr verkum Böðvars og skáldið sjálft heiðrar samkomuna með nærveru sinni en hann hefur verið búsettur í Danmörku undanfarinn aldarfjórðung.

Kristján Kristjánsson, útgefandi Böðvars hjá Uppheimum, segir rithöfundinn í fullu fjöri. Hann sé nú að skrifa sögulega skáldsögu sem ráðgert er að komi út á þessu ári.

„Hún fjallar um skrýtin örlög þýskra tónlistarmanna sem komu hingað til lands á tímum nasisma og seinni heimstyrjaldarinnar og höfðu mikil áhrif á íslenskt tónlistarlíf," útskýrir Kristján sem segir Böðvar vera í fullu fjöri. Í tilefni af afmæli Böðvars verður gefin út Alþýðusöngbókin, safn texta eftir Böðvar sem margir hverjir hafa aldrei verið gefnir út á prenti. „Og það er nú gaman að rifja það upp í þessu sambandi að þegar Böðvar gaf út plötuna Þjóðhátíðarljóð 1974 þá kom Kristinn Sigmundsson óperusöngvari mikið við sögu.

Hann söng reyndar voðalega lítið heldur var aðallega í fullu starfi sem undirleikari," segir Kristján.- fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.