Fótbolti

Íslendingasigrar í sænska kvennaboltanum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Guðrún Sóley í baráttunni við Margréti Láru.
Guðrún Sóley í baráttunni við Margréti Láru. Mynd/Stefán

Íslendingaliðið Djurgarden lenti ekki í neinum vandræðum með Stattena í sænska kvennaboltanum í kvöld og vann öruggan 6-0 sigur.

Guðrún Sóley Gunnarsdóttir og Guðbjörg Gunnarsdóttir léku allan leikinn fyrir Djurgarden. Þær höfðu það eflaust náðugt.

Djurgarden er í sjöunda sæti sænsku deildarinnar.

Dóra Stefánsdóttir mátti gera sér það að góðu að sitja á plankanum hjá Malmö í kvöld sem vann frekar óvæntan stórsigur, 4-0, á Kopparbergs/Göteborg.

Malmö í fjórða sæti deildarinnar eftir sigurinn góða í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×