Fótbolti

Völsungur og ÍBV í pottinum á mánudag

Valur og KR áttust við í úrslitaleiknum í fyrra þar sem KR vann 4-0.
Valur og KR áttust við í úrslitaleiknum í fyrra þar sem KR vann 4-0. Fréttablaðið
Nú er komið í ljós hvaða lið leika í 8-liða úrslitum VISA-bikars kvenna eftir leiki dagsins. Fjórir leikir fóru fram í dag þar sem Fylkir, ÍBV, Völsungur og Stjarnan komust áfram.

ÍBV og Völsungur spilar í 1. deildinni en öll hin í úrvalsdeild.

Dregið verður í 8-liða úrslit í hádeginu á mánudag og fer drátturinn fram í höfuðstöðvum KSÍ. Valur, Breiðablik, KR og Þór/KA höfnuðu í fjórum efstu sætum efstu deildar síðasta árs og eiga því trygg sæti í 8-liða úrslitum.

Úrslit dagsins:

Haukar 1-3 Fylkir

ÍR 0-5 Stjarnan

Sindri 1-4 Völsungur

Afturelding/Fjölnir 1- 3 ÍBV






Fleiri fréttir

Sjá meira


×