Menning

Sveitarstjóri og læknir eru Ekkiþjóðin

grímur atlason
Ekkiþjóðin ætlar að gefa út nýjan disk í orðsins fyllstu merkingu.
grímur atlason Ekkiþjóðin ætlar að gefa út nýjan disk í orðsins fyllstu merkingu.
„Ekkiþjóðin heitir bandið. Skrifað svona. Ekkiþjóðin," segir Grímur Atlason sveitarstjóri.

Hann ásamt félögum sínum, Lýði Árnasyni lækni og Hrólfi Vagnssyni, sem sér um að réttir tónstigar séu farnir, voru við upptökur á nýrri plötu sem gefa á út fljótlega í orðsins fyllstu merkingu. „Með áherslu á að gefa. Platan verður sem sagt gefins. Við tókum upp sextán lög um helgina. Í læknabústaðnum í Bolungarvík. Hver borgar brúsann? Nú, Lýður. Og kannski ég," segir Grímur. Hann gefur lítt fyrir spurninguna um hvort tilgangur útgáfunnar sé ekki bara athyglissýki á háu stigi. „Tilgangurinn er að skemmta fólki og hafa gaman af lífinu. Bandið mun spila í bland við Grjóthrun í Hólshreppi á Aldrei fór ég suður. Sem er að venju um páskana. Það liggur fyrir umsókn þar um sem vel var tekið í." Grímur segir að Mugison, sem er æðstráðandi á tónlistarhátíðinni, sé vel við Lýð lækni. Og svo sé reyndar um flesta Vestfirðinga ef undan eru skildir fáeinir kvótagreifar. Og sveitarstjóri Dalabyggðar hefur þetta til marks um það. „Ég var einu sinni í bíl með honum í Hnífsdal þar sem hann braut um það bil allar umferðarreglur. Löggan stoppaði okkur og ég sagði við löggu­mann: Lýður er góður maður. Og okkur var sleppt!"

Textarnir sem Ekkiþjóðin syngur einkennist af bullandi þjóðfélagsádeilu. En tónlistarstefnan er polki og reggí í bland.- jbg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.