Sport

Annað heimsmet hjá Bolt

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Bolt eftir hlaupið áðan.
Bolt eftir hlaupið áðan. Nordic Photos/AFP

Jamaíkamaðurinn ótrúlegi, Usain Bolt, heldur áfram að fara á kostum á heimsmeistaramótinu í frjálsíþróttum í Berlín.

Hann setti í kvöld ótrúlegt heimsmet í 200 metra hlaupi. Hann kom þá í mark á 19,19 sekúndum.

Hann stórbætti heimsmet sitt frá ÓL í Peking er hann kom í mark á 19,30 sekúndum.

Þetta er annað heimsmetið sem Bolt setur á HM en hann sló einnig heimsmetið í 100 metra hlaupinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×