Enn og aftur kraftaverk í Napólí -hjúh 19. september 2008 15:45 Hinum trúuðu sýnt blóðið.
Napólíbúar vörpuðu öndinni léttara í dag þegar þar gerðist enn einusinni það kraftaverk að þornað blóð heilags Genneros breyttist í vökva. Sagan segir að þegar Rómverjar hjuggu af honum höfuðið árið 305 eftir Krist hafi kona frá Napólí safnað blóði hans í svamp og geymt það í glerflösku. Blóðið þornaði Undanfarin árhundruð hefur blóðið verið geymt í dómkirkjunni í Napólí. Blóðið þornaði eins og lög gera ráð fyrir. En árið 1389 meira en 1000 árum eftir píslardauða Gennaros tóku menn eftir því að þurrt blóðið breyttist í vökva. Svo þornaði það aftur. Ákveðnir dagar Þá var hinsvegar farið að fylgjast með blóðinu og það kom í ljós að tvisvar á ári breytist þurrt blóðið í vökva. Það er 19. september sem er helgaður Gennaro og svo fyrsta laugardaginn í maí. Þúsundir manna þyrpast þá í dómkirkjuna. Það gerðist einnig í morgun. Og mannfjöldinn fagnaði ákaft þegar erkibiskup borgarinnar tilkynnti að blóðið hefði breyst í vökva klukkan 07:45. Það var svo gengið um með fagurlega skreytta flöskuna og mönnum sýnt kraftaverkið. Miklar hörmungar Og það er ekki nema von að fólkið fagni. Það hefur fimm sinnum komið fyrir að blóðið vökvaðist ekki. Og í öll skiptin fylgdu hörmungar í kjölfarið. Meðal annars í nóvember 1980 þegar um 300 manns fórust í öflugum jarðskjálfta í suðurhluta landsins.
Erlent Mest lesið „Búið að leggja upp dauðafæri fyrir Donald Trump“ Erlent Kallaði Trump „Hitler Ameríku“ og studdi Never Trump-hreyfinguna Erlent „Litu bara á þetta eins og hefði verið keyrt á kind“ Innlent Betlari til leiðinda í miðbænum Innlent Ætlar að áfrýja til Landsréttar Innlent Hefur aldrei verið í vinnu en hefur verið iðinn við afbrot Innlent Lík Jay Slater fundið Erlent Íslendingur fannst látinn á Spáni Innlent Stáli fyljar merar enn á fullu 26 vetra gamall Innlent J.D. Vance verður varaforsetaefni Trump Erlent Fleiri fréttir „Búið að leggja upp dauðafæri fyrir Donald Trump“ Kallaði Trump „Hitler Ameríku“ og studdi Never Trump-hreyfinguna J.D. Vance verður varaforsetaefni Trump Leyniskjalamáli Trump vísað frá dómi Fulltrúar Hamas og Fatah funda í Kína í næstu viku Hringurinn þrengist í leitinni að varaforsetaefni Lík Jay Slater fundið Kallas segir af sér vegna nýja starfsins Raðmorðingi játar að hafa myrt allt að 42 konur Katrínu tekið fagnandi á Wimbledon „Ég ætti að vera dauður“ Tæki 100 flutningabifreiðar 15 ár að flytja húsarústirnar á brott Ávarpaði þjóðina og hvatti menn til að „kæla“ orðræðuna Ástand hinna særðu sagt stöðugt Íslenskir ráðamenn verið skammaðir fyrir að senda Trump batakveðju Hinn látni slökkviliðsmaður sem fórnaði sér fyrir fjölskylduna Fundu sprengjur í bíl og á heimili árásarmannsins „Við viljum heim þar sem ástin sigrar“ Ótrúleg mynd virðist sýna kúlu fljúga fram hjá Trump Árásin komi til með að auka stuðning við Trump „Bandaríkjamenn krefjast svara um morðtilræðið“ Segir Guð hafa bjargað sér Bjarni segir atburði gærkvöldsins átakanlega Svona var vettvangur árásarinnar Musk styður Trump Grunaður árásarmaður hét Thomas Matthew Crooks Leiddur blóðugur af kosningafundi eftir skotárás Fannst á lífi eftir tvo sólarhringa neðanjarðar Umfangsmikil árás á Gasa talin hafa banað minnst 71 Maður handtekinn vegna líkamsleifa í ferðatösku Sjá meira