Viðskipti innlent

Krónan aldrei veikari

Krónan náði nýjum lægðum í dag.
Krónan náði nýjum lægðum í dag. Mynd/GVA
Gengi krónunnar hefur fallið um tæp tvö prósent í dag og hefur hún aldrei nokkru sinni verið veikari. Gengisvísitalan stendur nú í 174,75 stigum og hefur aldrei verið hærri. Evran er nú komin í 133 krónur og hefur aldrei verið dýrari. Bandaríkjadalur stendur í 93,6 krónum og hefur ekki verið dýrari síðan 1. maí árið 2002. Er þar reyndar miðað við lokagengi dals gagnvart krónu þá. Þá kostar eitt breskt pund 167,8 krónur og ein dönsk króna 17,8 krónur.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×