Menning

Nýtt starfsár hafið

Opið hús verður í Hallgrímskirkju á morgun á degi heilagrar Sesselju.
Opið hús verður í Hallgrímskirkju á morgun á degi heilagrar Sesselju.

Á morgun er opið hús í Hallgrímskirkju á degi heilagrar Sesselju og verður dyrum kirkjunnar lokið upp kl. 13.30. Dagskráin er þríþætt, kynning í tali og tónum á óratoríunni Ceceliu eftir Áskel Másson, kynning á nýjum geisladisk Mótettukórsins og dagskrá Listvinafélags Hallgrímskirkju.

Listvinafélagið er nú að hefja sitt 27. starfsár og liggur fyrir viðamikil dagskrá næsta árið. En tilefnið er meira: Mótettukórinn hefur lokið upptökum og vinnslu á geisladiski sínum, Ljósið þitt lýsi mér, en diskurinn verður kominn á markað í næstu viku. Kórinn flytur af því tilefni nokkur lög af disknum og kynnir efni hans.

Þá verður kynnt verkið Cecelia, óratoría sem Áskell Másson samdi við texta Thors Vilhjálmssonar með tóndæmum og frásögnum. Áskell segir frá verkinu, Thor Vilhjálmsson les upp og Mótettukórinn syngur. Verkið verður flutt í heild sinni á degi heilagrar Sesselju að ári.

Thor kemur meira við sögu: Páll á Húsafelli mun á morgun leika á steinahörpu sína, en sýningu hans og Thors á myndum af heilagri Sesselju í forkirkju lýkur í næstu viku. Komandi starfsár Listvinfélagsins verður kynnt. Meðal þess sem er á döfinni eru tónleikar helgaðir Olivier Messiaën í desember. Í janúar verða hátíðartónleikar á 250 ára ártíð Georgs Friedrichs Händel þar sem Scola Cantorum ásamt barokkhljómsveit flytur Messias eftir tónskáldið. Efnt verður til Sigurbjörnsvöku á föstunni, sex miðvikudaga í röð, sem verða helgaðir sérstökum áhugaefnum Sigurbjörns Einarssonar biskups og fyrrverandi sóknarprests í sókninni. Að dagskrá lokinni á morgun er boðið upp á kaffi og kökur í suðursal kirkjunnar.

- pbb








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.