Menning

Þjóðleikhússtjóri leikur hórumömmu

Ekki vefst fyrir þjóðleikhússtjóra að bregða sér í líki hórumömmu í Rétti.
Ekki vefst fyrir þjóðleikhússtjóra að bregða sér í líki hórumömmu í Rétti. fréttablaðið/vilhelm

Lögfræðidramasjónvarpsþættirnir Réttur eru nú í tökum en þar fara þau hjón Egill Ólafsson, tónlistarmaður og leikari, og Tinna Gunnlaugsdóttir þjóðleikhússtjóri með veigamikil hlutverk. Meðan Egill fer með hlutverk eldri lögmanns hér í bæ þá er hlutverk Tinnu öllu nýstárlegra. Hún leikur hórumömmu í Reykjavíkurborg. Að sögn Sigurjóns Kjartanssonar handritshöfundar er Tinna sem sköpuð fyrir hlutverkið.

„Já, hún er mjög flott hóru­mamma," segir Sigurjón. Fréttablaðið greindi frá því fyrir um mánuði að helstu hlutverk í Rétti eru í höndum þeirra Jóhönnu Vigdísar Arnardóttur, Magnúsar Jónssonar og Víkings Kristjánssonar en þau mynda þriggja manna lögfræðiteymi. Um er að ræða sex þátta sjónvarpsseríu og er hver þáttur sjálfstæður þótt þeir tengist. Leikstjóri er Sævar Guðmundsson. Fjöldi þekktra leikara kemur við sögu - þó er enginn Hilmir Snær Guðnason né Ingvar Sigurðsson.

„Nei," segir Sigurjón. „Ég held bara ekki. Það er mikið af ungum leikurum en nefna má Ragnheiði Steindórsdóttur sem leikur saksóknarann Urði. Meistarar á borð við Stefán Jónsson skjóta upp kollinum. Og svo leika þau hjónin Unnur Ösp Stefánsdóttir og Björn Thors í þáttunum - þó ekki hjón. Nei, nei, það er ekkert hjónaþema í gangi. Þetta er tilviljun."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.