Fótbolti

Uefa bikarinn: Jafnt hjá City

NordicPhotos/GettyImages

Manchester City varð að gera sér að góðu 0-0 jafntefli við franska liðið PSG í Evrópukeppni félagsliða í kvöld.

Menn á borð við Jo og Elano sem ekki hafa átt sæti í liðinu að undanförnu fengu í kvöld tækifæri til að sanna að þeir ættu heima í liðinu, en þeir náðu sér aldrei á strik frekar en aðrir leikmenn liðsins.

City var þegar búið að tryggja sér sæti í 32 liða úrslit keppninnar og því fengu nokkrir minni spámenn að reyna sig í kvöld. PSG er í neðsta sæti riðilsins A-riðilsins.

Udinese tryggði sig áfram í D-riðlinum með 2-1 útisigri á Dinamo Zagreb, en þar settu skrílslæti áhorfenda leiðinlegan svip á leikinn og hætta varð keppni um tíma.

Úrslitin í kvöld:

Manchester City 0 - 0 Paris-SG

Twente 2 - 1 Schalke

Standard Liège 3 - 0 Sampdoria

Sevilla 3 - 0 Partizan Belgrade

Berlin 0 - 1 Galatasaray

Metalist 1 - 0 Olympiacos CFP

Udinese 2 - 1 Dinamo Zagreb

Spartak Moscow 1 - 2 NEC Nijmegen






Fleiri fréttir

Sjá meira


×