Erlent

Margrét þú ert hræsnari

Óli Tynes skrifar
Margrét Þórhildur Danadrottning flytur áramótakveðju sína.
Margrét Þórhildur Danadrottning flytur áramótakveðju sína.

Extra Bladet danska vandar Margréti Þórhildi drottningu ekki kveðjurnar vegna áramótaávarps hennar. Þar hvatti drottningin þegna sína meðal annars til þess að sýna umhverfinu umhyggju og reyna að menga sem minnst.

"Margrét þú ert hræsnari," argar Extra Bladet á forsíðu. Blaðið segir að konungsfjölskyldan sé mestu mengarar landsins, ekki síst drottningin sjálf og Henrik prins.

Þau noti flugvélar og þyrlur flughersins nánast eins og leigubíla til þess að flytja sig á milli staða. Það kosti gríðarlegan útblástur gróðurhúsalofttegunda.

Umhverfissinnar eru hinsvegar ánægðir með orð Margrétar Þórhildar, enda Danir afskaplega elskir að drottningu sinni og taka mikið mark á því sem hún segir. Hvað svo sem Extra Blaðinu líður.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×