Erlent

Tjá sig ekki um árás tígrisdýrsins

Óli Tynes skrifar

Bræðurnir sem urðu fyrir árás tígrisdýrs í San Francisco fyrir áramótin hafa verið útskrifaðir af sjúkrahúsi. Dýrið drap félaga þeirra.

Bræðurnir hafa ekkert tjáð sig um árásina en því hefur verið haldið fram að piltarnir þrír hafi espað tígrísdýrið í búri sínu og gert það svo brjálað að það stökk yfir veggi þess.

Nú hefur verið útilokað að einhver hafi hleypt dýrinu út. Það hefur hinsvegar komið í ljós að veggirnir í búri þess eru fjórum fetum lægri en reglur segja til um.

Forstjóri dýragarðsins segir að það sé alveg ljóst að dýrið hafi stokkið þar yfir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×