Viðskipti innlent

Century Aluminum hækkaði mest

Úr álverinu á Grundartanga.
Úr álverinu á Grundartanga.
Gengi hlutabréfa í Century Aluminum, móðurfélagi álversins á Grundartanga, hækkaði um 19,46 prósent í Kauphöllinni í dag og er það mesta hækkun dagsins. Á eftir fylgdi gengi bréfa í hinum færeyska Eik banka, sem fór upp um 2,77 prósent. Á sama tíma féll gengi bréfa í Bakkavör um 3,85 prósent, Icelandair Group um 1,69 prósent, í Eimskipafélaginu um 1,49 prósent og í Færeyjabanka um 1,38 prósent. Viðskipti með hlutabréf voru 36 talsins í dag upp á 15,7 milljónir króna. Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,22 prósent og endaði í 653 stigum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×