Fótbolti

Hildebrand í mark Hoffenheim

Elvar Geir Magnússon skrifar
Hildebrand fann sig ekki á Spáni.
Hildebrand fann sig ekki á Spáni.

Spútniklið þýsku úrvalsdeildarinnar, Hoffenheim, hefur tryggt sér þjónustu markvarðarins Timo Hildebrand. Hann mun ganga til liðs við félagið í janúar.

Spænska liðið Valencia sagði upp samningi Hildebrand í upphafi mánaðarins en hann fann sig ekki í spænska boltanum. Hann er 29 ára og gerði garðinn frægan hjá Stuttgart áður en hann hélt til Valencia.

Ekki er búið að gefa upp hve langur samningur Hildebrand við Hoffenheim er. Liðið situr óvænt í efsta sæti þýsku deildarinnar en það hefur 34 stig líkt og Bayern München.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×