Menning

Lapidus les fyrir Íslendinga

Lapidus
Er lögfræðingur að mennt og var kjörinn best klæddi Svíinn árið 2007.
Lapidus Er lögfræðingur að mennt og var kjörinn best klæddi Svíinn árið 2007.

Sænski glæpasagnahöfundurinn Jens Lapidus ætlar að sækja landið heim og lesa upp úr bók sinni Fundið fé sem kemur út á vegum JPV fyrir þessi jól. Lapidus þessi hefur slegið í gegn meðal sænsku þjóðarinnar með sakamálasögum sínum en bakgrunnur hans er nokkuð óvenjulegur.

Lapidus er lögfræðingur og hefur varið marga af þekktustu glæpamönnum Svíþjóðar. Hann notfærir sér þennan bakgrunn óspart í glæpasögum sínum. Lapidus mun lesa upp úr bók sinni á Te & kaffi í húsakynnum Máls og menningar á Laugavegi.

Annars er nokkuð skondið að segja frá því að þýðandi bókarinnar er Jón Daníelsson en kápuhönnuðurinn er Jón Ásgeir. Þetta eru þó ekki Jón Daníelsson, hagfræðingur við London School of Econmics, né heldur útrásarvíkingurinn Jón Ásgeir Jóhannesson. Þótt þeir tveir gætu eflaust gefið út bók með þessum titli, Fundið fé.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.