Fótbolti

Schweinsteiger framlengir hjá Bayern

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Bastian Schweinsteiger fagnar marki með Bayern München.
Bastian Schweinsteiger fagnar marki með Bayern München. Nordic Photos / Getty Images

Þýski landsliðsmaðurinn Bastian Schweinsteiger hefur framlengt samning sinn við Bayern München til loka tímabilsins 2012.

Gamli samningurinn átti að renna út í lok tímabilsins en viðræður um nýja samninginn hafa gengið hægt. Schweinsteiger var lengi orðaður við bæði Juventus og Real Madrid.

Hins vegar er ljóst að Schweinsteiger verður áfram í herbúðum Bayern en það var staðfest á heimasíðu félagsins í dag.

Staða Lukas Podolski er hins vegar óljós en því hefur verið haldið fram að hann fari frá félaginu í næsta mánuði, þá til Marseille í Frakklandi, en því hefur verið neitað af forráðamönnum Bayern.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×