Handbolti

Rússar rúlluðu yfir Kóreumenn

Alexander Chernoivanov skoraði þrjú mörk fyrir Rússa gegn Kóreu
Alexander Chernoivanov skoraði þrjú mörk fyrir Rússa gegn Kóreu MYND/Nordic Photos

Rússar fóru létt með Suður Kóreu, 29-22, í lokaumferð B-riðils í handboltakeppni Ólympíuleikanna í Peking í nótt. Rússar höfðu yfirburði allan leikinn og leiddu í hálfleik, 17-12.

Alexey Rastvortsev var markahæstur í liði Rússa með sex mörk en stórskyttan aldna Yoon var atkvæðamestur Kóreumanna með sjö mörk.

Staðan í riðlinum fyrir síðasta leikinn, Þýskaland gegn Danmörk, er þannig að Kóreumenn og Íslendingar eru með sex stig en Kóreumenn eru ofar vegna árangurs í innbyrðisleikjum. Rússar og Þjóðverjar eru með fimm stig og Danir eru með fjögur stig.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×