Menning

Leitað til fortíðar

Leita til fortíðar á sunnudag Tónlistarmennirnir sem koma fram á 15.15 tónleikum í Norræna húsinu.
Leita til fortíðar á sunnudag Tónlistarmennirnir sem koma fram á 15.15 tónleikum í Norræna húsinu.

Ný tónleikasyrpa í tónleikaröðinni 15:15 hefst í Norræna húsinu á sunnudag kl. 15.15, eins og lög gera ráð fyrir. Tónleikarnir bera yfirskriftina Leitað til fortíðar, enda eiga verkin sem flutt verða það sameiginlegt að byggja á þjóðdönsum, þjóðlögum, fornum sögum eða ljóðum.

Flytjendur á tónleikunum eru þau Þórunn Guðmundsdóttir sópransöngkona, Eydís Franzdóttir óbóleikari, Ármann Helgason klarinettleikari og Kristín Mjöll Jakobsdóttir fagottleikari.

Tónleikarnir hefjast á tveimur verkum eftir franska tónskáldið Henri Tomasi, Concert Champetre fyrir blásara tríó og Sonaina attque fyrir einleiks klarinett. Því næst taka við undurfalleg lög fyrir einsöngsrödd og óbó eftir enska tónskáldið Vaughan Williams, en lögin voru samin við tíu ljóð eftir skáldið William Blake. Þar á eftir verður flutt verk Benjamins Britten fyrir einleiksóbó, Six Metamorphoses after Ovid. Tónleikunum lýkur svo á tveimur verkum eftir Gordon Jakob, þremur sönglögum fyrir sópran og klarinett og tríói fyrir blásara. Verkin eru bæði eins og flest verk Gordons Jakobs; á glaðlegum nótum með þjóðlegu ívafi. - vþ








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.