Fótbolti

Bent minnti á sig

NordicPhotos/GettyImages

Harry Redknapp stjóri Tottenham segir að þrenna Darren Bent í 4-0 sigri liðsins á Dinamo Zagreb í kvöld þýði að hann standi nú fram fyrir lúxusvandamáli við að velja framherja í byrjunarlið sitt.

Bent hefur ekki átt fast sæti í liði Tottenham síðan hann var keyptur fyrir stórfé til félagsins en fékk loks að spila eftir að þeir Dimitar Berbatov og Robbie Keane fóru frá félaginu.

Bent hefur nú skorað níu mörk á leiktíðinni - meira en Keane og Berbatov til samans hjá nýju liðunum sínum.

"Hann hefur staðið sig mjög vel. Ég hef ekki unnið með honum áður en hann er með gott hugarfar og vinnur vel í leik sínum. Það er frábært fyrir hann að vera kominn með níu mörk og vonandi heldur hann áfram. Við erum að mínu mati með þrjá framherja sem geta skilað sínu - þeir Bent og (Roman) Pavlyuchenko eru báðir að skora og Frazier Campell stóð sig vel þegar hann kom inn á í kvöld," sagði Redknapp.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×