Fótbolti

Undanúrslit UEFA bikarsins í kvöld

Elvar Geir Magnússon skrifar
Úr fyrri leik Bayern og Zenit.
Úr fyrri leik Bayern og Zenit.

Í kvöld ræðst það hvaða lið munu leika til úrslita í Evrópukeppni félagsliða, UEFA bikarnum. Þá fara fram síðari leikir undanúrslita en báðir leikirnir verða sýndir á Stöð 2 Sport.

Zenit St. Pétursborg tekur á móti Bayern München kl. 18:45 en fyrri leikurinn endaði með jafntefli 1-1 og Zenit því með dýrmætt útivallarmark.

Fiorentina og Glasgow Rangers mætast á Ítalíu en fyrri leikur þeirra endaði með markalausu jafntefli. Sá leikur hefst 20:45.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×