Enski boltinn

Deco enn óákveðinn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Deco á æfingu með portúgalska landsliðinu ásamt Pepe (til hægri).
Deco á æfingu með portúgalska landsliðinu ásamt Pepe (til hægri). Nordic Photos / AFP

Deco, leikmaður portúgalska landsliðsins og Barcelona, er enn óákveðinn hvort hann vilji ganga til liðs við Chelsea eða Inter Milan.

„Ég hef ekki samið við annað liðið. Ég hef ekki enn ákveðið mína framtíð þar sem ég þarf fyrst að funda með umboðsmanni mínum og skoða hvað sé mér fyrir bestu," sagði Deco.

„En mitt markmið er að vinna titila. Ég mun ekki ganga til liðs við félag sem mér líkar ekki við eða þá gerir mér ekki kleift að vinna titila."

Inter þykir líklegra til að fá Deco í sínar raðir enda er félagið nýbúið að ráða Jose Mourinho sem knattspyrnustjóra. Þeir unnu áður saman hjá Porto.

„Samband mitt við Mourinho er mjög gott og það gæti verið lykilatriði í þessu," sagði Deco. „En ég mun ekki ganga frá þessum málum fyrr en EM er lokið."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×