Fótbolti

Ribery vildi fá fleiri atkvæði

Ribery vildi fá fleiri atkvæði
Ribery vildi fá fleiri atkvæði NordicPhotos/GettyImages

Franski landsliðsmaðurinn Franck Ribery hjá Bayern Munchen hafði ekkert við það að athuga þegar Cristiano Ronaldo hjá Manchester United var sæmdur gullknettinum á dögunum.

Hann var hinsvegar mjög ósáttur við að lenda aðeins í sextánda sæti sjálfur.

"Það kemur mér ekki á óvart að Ronaldo hafi orðið fyrir valinu. Ég hefði kosið hann sjálfur," sagði Ribery í samtali við L´Equipe.

"En ef ég á að vera alveg hreinskilinn, er ég ósáttur við það hvar ég lendi á listanum. Ég átti frábært ár með Bayern á síðustu leiktíð, ég er kominn í toppform á ný og hef fengið mikið lof fyrir frammistöðu mína síðustu vikur," sagði franski landsliðsmaðurinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×