Heimsins stærstu fasteignaviðskipti 12. apríl 2008 11:30 Háhýsi við Madison Avenue í New York.
Ashkenazy Acquisition og Carlyle Group tilkynntu í vikunni um stærstu fasteignaviðskipti í heimi þegar fyrirtækin tóku yfir háhýsi í New York. Skrifstofu- og verslunarturninn á Madison breiðstræti númer 650 er rúmlega 55.700 fermetrar. Turninn keyptu fyrirtækin af Hiro fasteignamiðluninni fyrir litlar 680 milljónir dollara sem samsvara rúmlega 50 milljörðum íslenskra króna. Eignin er vel staðsett á besta stað á Manhattan milli 59. og 60. strætis á Madison Avenue. Hún er beint á móti GM byggingunni í hjarta Plaza hluta borgarinnar. Hún með útsýni yfir Central Park og í næsta nágrenni við Barney´s. Í húsinu er meðal annars aðalverslun Crate and Barrel í New York, höfuðstöðvar Polo Ralph Lauren auk fjölmargra mikilsmetinna fyrirtækja. Michael Alpert forseti Ashkenazy Acquisition sagði að samningurinn undirstrikaði stöðu þeirra sem stærsta verslunar- og skrifstofu leigumiðlara á Madison Avenue. „Eignin er staðsett á miðpunknti eftirsóttasta skrifstofu- og verslunarsvæði borgarinnar. Turninn er leigður af fáguðum leigjendum og við tökum kaupunum opnum örmum" sagði hann í viðtali við Business Wire. „Við erum afar glöð fyir því að á sama tíma og óstöðugleiki einkennir efnahag , og samningar hafa ekki alltaf náðst auðveldlega, tókst okkur á áhrifaríkan hátt að fjármagna kaupin á hagkvæman hátt," sagði hann. Ashkenazy Acquisition á eignir víða um Bandaríkin, þar á meðal Union Station í Washington og Barney´s í New York, Beverly Hills og Chicago.
Viðskipti Mest lesið Sunna veitir Livio samkeppni í frjósemi Viðskipti innlent Enn eitt félag Quangs gjaldþrota Viðskipti innlent Svekktur en ekki hissa á færri íbúðum í byggingu Viðskipti innlent Færri íbúðir í byggingu en fyrir ári Viðskipti innlent „Við eigum margar rómantískar stundir í vinnunni“ Atvinnulíf Andri aðstoðarframkvæmdastjóri Júní Viðskipti innlent Gengi Icelandair flaug upp á við Viðskipti innlent Gervigreind og tíska: Hafa nú þegar fengið 100 milljónir í styrki Atvinnulíf Vill laða að lágverðsverslun á Krókinn Viðskipti innlent Milljarður í arðgreiðslur hjá Toyota Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stýrivextir lækkaðir í Bandaríkjunum í fyrsta sinn í fjögur ár Tupperware lýsir yfir gjaldþroti Snúa við dómnum og dæma Bonnesen í fangelsi Gera Apple að greiða tvær billjónir í skatta Skaut samstundis niður tillögur um efnahagslega björgun Evrópu Bein útsending: Apple kynnir nýjustu græjurnar Hætta steðjar að lífsgæðum Evrópubúa Volvo heykist á algjörri rafvæðingu árið 2030 Þessari rafmagnsflugvél er ætlað að flytja 90 farþega Zuckerberg harmar að hafa látið undan þrýstingi Bidens Breska stjórnin samþykkir að efla London City-flugvöll Sádar sagðir byrjaðir að skrúfa fyrir kranann Susan Wojcicki er látin Ummæli Trump vekja áhyggjur af sjálfstæði seðlabanka Hlutabréfin ruku aftur upp degi eftir hrun Google beið lægri hlut í risavöxnu einokunarmáli Hrun í hlutabréfamörkuðum ytra Sjá meira