Fótbolti

Kohler hætti að læknisráði

Jurgen Kohler var einn besti miðvörður heims á tíunda áratugnum
Jurgen Kohler var einn besti miðvörður heims á tíunda áratugnum NordicPhotos/GettyImages

Þýski varnarjaxlinn Jurgen Kohler hefur látið af störfum sem þjálfari þriðjudeildarliðsins Aalen í Þýskalandi samkvæmt læknisráði.

Kohler var allt í öllu í varnarlínu heimsmeistara Þjóðverja árið 1990 og á að baki 105 landsleiki.

Hinn 43 ára Kohler hefur nú tekið stöðu yfirmanns íþróttamála hjá Aalen eftri að læknirinn ráðlagði honum að skipta um vettvang.

"Læknirinn gaf mér gula spjaldið," sagði Kohler í viðtali á heimasíðu félagsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×