Stórsigur Stabæk - Gylfi skoraði Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 14. september 2008 18:07 Gylfi Einarsson, leikmaður Brann, skoraði í dag.
Gylfi Einarsson skoraði er Brann gerði 1-1 jafntefli við Viking en Veigar Páll Gunnarsson lagði upp tvö mörk í 6-0 stórsigri Stabæk á Strömsgodset. Stabæk er nú með sex stiga forystu á toppi norsku úrvalsdeildarinnar en Fredrikstad getur minnkað það í fjögur stig ef liðið vinnur Rosenborg nú í kvöld. Veigar Páll lék allan leikinn fyrir Stabæk þar sem Daniel Nannskog skoraði fjögur mörk. Pálmi Rafn Pálmason kom inn á sem varamaður í síðari hálfleik. Ólafur Örn Bjarnason, Kristján Örn Sigurðsson, Gylfi Einarsson og Ármann Smári Björnsson voru allir í byrjunarliði Brann í dag. Sá síðastnefndi var tekinn af velli á 67. mínútu en Birkir Már Sævarsson hafði komið inn á sem varamaður skömmu áður. Haraldur Freyr Guðmundsson sat allan leikinn á varamannabekk Álasundar sem tapaði, 2-1, fyrir HamKam. Þá gerðu Molde og Lilleström 1-1 jafntefli. Álasund er í neðsta sæti deildarinnar með fimmtán stig en Brann í áttunda sæti með 25 stig. Þá var einnig leikið í norsku B-deildinni í dag. Sandefjord gerði 1-1 jafntefli við Haugesund á útivelli en Kjartan Henry Finnbogason skoraði mark fyrrnefnda liðsins í upphafi síðari hálfleiks. Þá vann Bryne 6-1 sigur á botnliði Hödd en Baldur Sigurðsson kom ekki við sögu í leiknum. Allan Borgvardt skoraði tvö marka Bryne.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Húbba Búbba kippt af dagskrá: „Það eina sem ég spila í Víkinni er fótbolti“ Íslenski boltinn „Ég á Íslandi líf mitt að þakka“ Íslenski boltinn Framarar flæktir í óskýrum reglum HSÍ: „Þetta er alveg galið dæmi“ Handbolti Hafi snúist hugur og vilji nú fara til Liverpool Enski boltinn Eftirsjá Gary Martin: „Mín skoðun, fólk mun ekki vera sammála henni“ Íslenski boltinn „Djúpir dalir en þú kemst upp úr þeim“ Sport Trompaðist eftir misheppnaða hælsendingu í dauðafæri: „Nei! Nei! Nei!“ Fótbolti Arteta með vondar fréttir af meiðslum Ødegaards Enski boltinn Var hetjan framan af en stóð uppi sem skúrkurinn Fótbolti Með tvær ferðatöskur af fíkniefnum Enski boltinn Fleiri fréttir Í beinni: Atalanta - Arsenal | Snúið start fyrir Arteta og hans menn Í beinni: Monaco - Barcelona | Börsungar byrja á hörkuleik Úlfur Ágúst orðaður við Messi og félaga á Miami Sparkað eftir tapið rosalega gegn Bayern Trompaðist eftir misheppnaða hælsendingu í dauðafæri: „Nei! Nei! Nei!“ Húbba Búbba kippt af dagskrá: „Það eina sem ég spila í Víkinni er fótbolti“ Með tvær ferðatöskur af fíkniefnum Haaland neitaði að gefa Acerbi treyjuna sína eftir að hann hafði ítrekað togað í hana Næstu mótherjar Íslands mun ofar á heimslista Fannst stemningin á Etihad steindauð Eftirsjá Gary Martin: „Mín skoðun, fólk mun ekki vera sammála henni“ Hafi snúist hugur og vilji nú fara til Liverpool Utan vallar: Total-fótboltamaðurinn sem rétti Blikakúrsinn Sjáðu öll mörkin og ævintýralegt klúður Gazzaniga Segir að hann myndi kýla netníðingana í nefið ef þeir stæðu fyrir framan hann „Ég á Íslandi líf mitt að þakka“ Arteta með vondar fréttir af meiðslum Ødegaards Stúkan: „Sama hvað hann gerir ekki gefa honum gult spjald“ Stjarnan í vondum málum eftir tap í Írlandi Var hetjan framan af en stóð uppi sem skúrkurinn Markalaust á Etihad Íslendingalið Vålerenga og Wolfsburg með misgóða sigra í Meistaradeildinni Man City saknaði ekki þeirrar markahæstu og Arsenal tapaði í Svíþjóð Keflavík í góðri stöðu Rómverjar búnir að finna eftirmann De Rossi Sú markahæsta ekki með vegna klaufalegra mistaka Óviss um að hann sé velkominn á Oasis tónleikana Amanda skoraði og er skrefi nær riðlakeppninni Ten Hag rólegur þrátt fyrir fullkomið kvöld Markafjöldi Haalands kemur Guardiola á óvart Sjá meira