Menning

Hjón leika á orgel

Músíkalskt par Ágúst Ingi Ágústsson og Lára Bryndís Eggertsdóttir koma fram á tónleikum í Langholtskirkju á sunnudag.
Músíkalskt par Ágúst Ingi Ágústsson og Lára Bryndís Eggertsdóttir koma fram á tónleikum í Langholtskirkju á sunnudag.

Hjónin Lára Bryndís Eggertsdóttir og Ágúst Ingi Ágústsson halda orgeltónleika í Langholtskirkju á sunnudagskvöld kl. 20. Segja má að tónleikarnir séu sannkallaður fjölskylduviðburður, enda leika þau hjónin tónlist eftir Johann Sebastian Bach og syni hans þá Carl Philipp Emanuel Bach og Johann Christian Bach.

Það er sannarlega ekki á hverjum degi sem að tónlistarunnendum gefst færi á að sjá og heyra hjón leika saman á orgeltónleikum og því ljóst að viðburðurinn er nokkuð forvitnilegur.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.