Menning

Förðunarbók vinsælust í Eyjum

Eyjamærin Anna Ester segist næstum því hafa klesst á þegar hún sá andlit sitt á stórri auglýsingu í strætóskýli. Hún er ánægð með þær góðu viðtökur sem bókin hefur fengið.
Eyjamærin Anna Ester segist næstum því hafa klesst á þegar hún sá andlit sitt á stórri auglýsingu í strætóskýli. Hún er ánægð með þær góðu viðtökur sem bókin hefur fengið.

„Þegar fólk uppgötvaði þetta fór bókin að seljast rosalega vel," segir Erla Halldórsdóttir, verslunarstjóri Eymundsson í Vestmanneyjum, um bókina Förðun - þín stund. Þrátt fyrir vinsældir um allt land hefur bókin hlutfallslega selst best í Vestmanneyjum og má eflaust rekja þær vinsældir til Eyjameyjarinnar Önnu Esterar Óttarsdóttur sem prýðir forsíðuna. „Fólkið hérna var svolitla stund að átta sig á að þetta var Anna Ester sem var framan á bókinni og þegar maður fer til Reykjavíkur upplifir maður bara Sex and the city við að sjá hana í strætóskýlum borgarinnar," segir Erla og hlær, en Anna Ester var kjörin sumarstúlka Vestmanneyja 2007. „Þetta er bók sem hefur vantað á markaðinn lengi og verður án efa ein vinsælasta jólagjöfin til stelpna og kvenna á öllum aldri í Vestmanneyjum," bætir hún við og segist viss um að bækur verði ein aðalgjöfin í ár þar sem sala hafi aukist gífurlega.

Anna Ester segir sér hafa brugðið töluvert þegar hún sá andlit sitt á stórum auglýsingum. „Mér brá svo fyrst þegar ég sá auglýsinguna í strætóskýli að ég var næsum því búin að klessa á, ég bjóst ekki við að þetta yrði svona stórt," segir Anna sem er nú búsett í Reykjavík og stundar nám í hársnyrtiiðn við Tækniskólann í Reykjavík. „Ég er gjarnan spurð hvort ég eigi dökkhærða systur því ég er ljóshærð í dag, en það eru margir búnir að hrósa myndinni og það er mjög gaman að hafa tekið þátt í þessu," segir Anna. - ag






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.