Menning

Geta ekki hætt að teikna

Sara maría Hægt verður að gera góð kaup í Bolaportinu um helgina.
Sara maría Hægt verður að gera góð kaup í Bolaportinu um helgina.

Um helgina verður slegið upp heljarinnar veislu í tilefni þriggja ára afmælis verslunarinnar Nakta apans í Bankastræti. Gamanið hefst í dag klukkan 14 og verða ýmsar uppákomur í boði. Sara María Eyþórsdóttir, hönnuður og eigandi verslunarinnar, segir að það verði stíf dagskrá í gangi alla helgina.

„Við verðum meðal annars með Bolaportið á laugardaginn í portinu hérna við hliðina á versluninni þar sem hægt er að kaupa gömul eintök af stuttermabolum frá Nakta apanum. Þar verður einnig hægt að kaupa handmálaðar nælur og svo verður hér myndlistarsýning sem ber yfirskriftina Með sinaskeiðabólgu en getum ekki hætt að teikna." Í versluninni sjálfri verður svo hægt að gera kostakaup þar sem allar vörur verða á afslætti. Hann er einnig langur listinn af hljómsveitum og plötusnúðum sem munu troða upp um helgina og má þar nefna hljómsveitir á borð við FM Belfast, Retro Stefson, Agent Fresco, Sykur og Miss Mount og plötusnúðana Alfons X, Danna Delux og hið sænska plötusnúðateymi B-Line Crew. „Á laugardagskvöldinu breytum við Prikinu í skemmtistað Nakta apans, staðurinn verður skreyttur í anda Nakta og boðið verður upp á litríka kokkteila," segir Sara María og lofar góðri stemningu um helgina. - sm






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.