Fótbolti

Eiður spilaði 60 mínútur í sigurleik

Eiður á fleygiferð í leiknum í kvöld
Eiður á fleygiferð í leiknum í kvöld AFP

Eiður Smári Guðjohnsen var í byrjunarliði Barcelona sem lagði Recreativo 3-0 í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld, en honum var skipt af velli í síðari hálfleik.

Gabriel Milito, Leo Messi og Bojan skoruðu mörk Katalóníuliðsins, sem komu öll eftir að Eiður Smári var farinn af leikvelli. Frammistaða Barcelona liðsins var ekki sú besta í vetur en eftir að liðið náði að skora fyrsta markið var aldrei spurning hvoru megin sigurinn lenti.

Þá urðu nokkuð óvænt úrslit þegar Sevilla lá heima 2-1 fyrir Mallorca.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×