Golf

Birgir Leifur á einu höggi yfir pari í dag

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Birgir Leifur Hafþórsson stendur í ströngu þessa dagana.
Birgir Leifur Hafþórsson stendur í ströngu þessa dagana. Nordic Photos / Getty Images

Birgir Leifur Hafþórsson gaf aðeins eftir í baráttunni á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina í golfi en stendur engu að síður vel að vígi eftir þrjá keppnisdaga.

Hann lék á 73 höggum í dag, einu yfir pari vallarins. Hann er því á tveimur höggum undir pari fyrir fjórða keppnisdaginn á morgun. Þrjátíu efstu kylfingarnir eftir sex hringi tryggja sér á endanum þátttökurétt á Evrópumótaröðinni á næsta ári.

Hann var í kringum 20.-35. sæti þegar hann lauk keppni í dag en það kemur endanlega í ljós þegar allir hafa lokið keppni í hvaða sæti hann verður þegar keppni hefst á morgun.

Birgir Leifur lék í dag á nýja vellinum á svæði San Roque-klúbbsins á Spáni, eins og í gær, en hann keppti á eldri vellinum í fyrradag. Í dag hóf hann hins vegar leik á 10. braut.

Fylgst var með gangi mála í textalýsingu hér á Vísi.

10.30

Birgir Leifur hefur lokið við fimm holur í dag þegar þetta er ritað. Hann byrjaði illa í dag og fékk skramba á annarri holu eftir að hafa fengið par á þeirri fyrstu.

Hann þurfti að taka víti á annari braut eftir slæmt teighögg og lenti svo í sandgryfju. Hann var kominn inn á flöt í fimm höggum og tvípúttaði.

Birgir Leifur bætti þó að hluta til fyrir mistökin með því að ná fugli á þriðju braut. Síðan hefur hann fengið tvö pör í röð.

10.55

Átti séns á fugli en tryggði þess í stað öruggt par á fimmtándu holu. Hann er í 22.-34. sæti sem stendur.

11.13

Frábær fugl hjá Birgi Leifi á sextándu holu sem er par fimm. Hann púttaði fyrir erni en tryggði öruggan fugl. Þar með er hann kominn á parið og er í kringum 12.-22. sætið.

11.28

Annar fugl í röð hjá Birgi Leifi. Frábær árangur hjá honum en hann náði fugli á sautjándu holu sem er par þrjú.

11.40

Þetta hefur verið skrautlegt hjá Birgi Leifi til þessa í dag en hann kemur inn á pari eftir að hafa fengið skolla á átjándu holu. Nú á hann fyrri níu eftir. Hann er sem stendur í 15.-21. sæti.

12.03

Birgir Leifur byrjaði ekki vel á fyrstu brautinni. Hann fékk skolla en hann lenti í sandgryfju eftir annað höggið sitt og þurfti svo að tvípútta. Annar skollinn í röð eftir tvo fugla í röð.

Þessar sömu holur spilaði hann í gær á einu yfir pari, eftir einn skolla og átta pör.

12.18

Jæja, áfram heldur þetta hjá Birgi Leifi. Hann nældi sér í góðan fugl á 2. braut, þar sem hann fékk örninn í gær. Hann púttaði reyndar fyrir erni í dag líka en tryggði þess í stað fuglinn.

Þetta er fimmta holan í röð sem hann spilar ekki á pari.

12.34

Þá kom loksins parið á þriðju braut. Birgir Leifur lenti að vísu í sandgryfju en bjargaði parinu engu að síður vel. Hann er í 17.-22. sæti sem stendur.

12.57

Öruggt par á fjórðu braut.

13.19

Slæmur skolli á fimmtu braut. Birgir Leifur púttaði fyrir fugli en endaði svo með því að þrípútta heldur klaufalega.

13.29

Birgir Leifur fékk par á 6. holu þar sem hann fékk fugl í gær. Hann er nú í 19. sæti ásamt öðrum kylfingum.

13.52

Fékk aftur par eftir að hafa rétt misst af fugli á sjöundu holu.

14.17

Gott par á næstsíðustu holunni í dag.

14.29

Birgir Leifur lauk keppni á 73 höggum í dag eftir að hann náði pari á síðustu holunni. Endaði ágætlega í dag og á hann enn góðan möguleika á því að komast áfram.

Fylgst er með gangi mála, holu fyrir holu, á kylfingur.is.

Þriðji keppnisdagur: einn yfir pari

10. braut: Par 4 (341 metri) - 4 högg (par)

11. braut: Par 5 (565 metrar) - 7 högg (skrambi)

12. braut: Par 4 (311 metrar) - 3 högg (fugl)

13. braut: Par 3 (167 metrar) - 3 högg (par)

14. braut: Par 4 (416 metrar) - 4 högg (par)

15. braut: Par 4 (417 metrar) - 4 högg (par)

16. braut: Par 5 (457 metrar) - 4 högg (fugl)

17. braut: Par 3 (196 metrar) - 2 högg (fugl)

18. braut: Par 4 (414 metrar) - 5 högg (skolli)

Seinni níu: (Par 36) 36 högg (á pari)

1. braut: Par 4 (407 metrar) - 5 högg (skolli)

2. braut: Par 5 (503 metrar) - 4 högg (fugl)

3. braut: Par 4 (339 metrar) - 4 högg (par)

4. braut: Par 3 (177 metrar) - 3 högg (par)

5. braut: Par 4 (346 metrar) - 5 högg (skolli)

6. braut: Par 4 (331 metri) - 4 högg (par)

7. braut: Par 5 (523 metrar) - 5 högg (par)

8. braut: Par 3 (205 metrar) - 3 högg (par)

9. braut: Par 4 (395 metrar) - 4 högg (par)

Fyrri níu: (Par 36) 37 högg (einn yfir pari)

Fyrsti keppnisdagur: 71 högg (einn undir pari vallarins)

Annar keppnisdagur: 70 högg (tveimur undir pari vallarins)

Samtals: tveir undir pari

Alls hófu 156 kylfingar leik á fyrsta hring en þeir sem lenda í efstu 30 sætunum eftir sex hringi fá þátttökurétt á Evrópumótaröðinni á næsta ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×