Fótbolti

Jimenez tekur við Sevilla

NordicPhotos/GettyImages

Spænska knattspyrnufélagið Sevilla gekki í morgun frá ráðningu Manuel Jimenez í stöðu þjálfara eftir að Juande Ramos sagði af sér í gær. Talið er víst að Ramos gangi í raðir Tottenham á Englandi á næstu dögum. Jimenez stýrði áður ungmennaliði Sevilla.

Hann er fyrrum vinstri bakvörður Sevilla og spænska landsliðsins og spilaði 354 leiki fyrir félagið á 14 ára ferli með Andalúsíuliðinu. Jimenez er sagður bera ábyrgð á þeim mikla efnivið uppalinna leikmanna sem komið hafa upp hjá Sevilla á síðustu árum og mun hann stýra liðinu í sínum fyrsta leik á morgun þegar það tekur á móti Valencia.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×