Fótbolti

Knattspyrnumenn í raunveruleikasjónvarp

Spænska liðið Granada 74 sem leikur í annari deild hefur gert samning við sjónvarpsstöð um að gera raunveruleikasjónvarpsþátt í kring um liðið.

Granada 74 er í 15. sæti 2. deildarinnar á Spáni eftir að hafa komið úr 4. deild í kjölfar þess að félagið keypti félagið Ciudad de Murcia í sumar. Myndatökumönnum verður gefinn óheftur aðgangur að æfingasvæði, skrifstofum og búninsherbergjum liðsins í 13 vikur á meðan tökur standa yfir og herma spænskir miðlar að félagið muni fá um 600,000 evrur frá sjónvarpsstöðinni fyrir tilstandið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×