Golf

Erfitt hjá Birgi á Mallorca

NordicPhotos/GettyImages

Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG náði sér ekki á strik á fyrsta hringnum sínum á Mallorca mótinu í golfi og lauk keppni í dag á 76 höggum - 6 yfir pari.

Birgir fékk aðeins tvo fugla á hringnum, 10 pör, 4 skolla og 2 skramba og er á meðal neðstu manna á mótinu það sem af er. Fjórir menn deila efsta sætinu á mótinu og eru á þremur höggum yfir pari. Mótið er liður í Evrópumótaröðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×