Fótbolti

Kristinn dæmir í Rússlandi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kristinn er á leið til Rússlands í þarnæstu viku.
Kristinn er á leið til Rússlands í þarnæstu viku. Mynd/Vilhelm

Kristinn Jakobsson mun dæma viðureign Spartak Moskvu og Bayer Leverkusen á Luzhniki-leikvanginum eftir tvær vikur.

Þetta kom fram hjá Gylfa Orrasyni í Meistaradeildarþættinum á Sýn í kvöld. Kristinn dæmdi leik Rennes og Lokomotiv Sófíu í sömu keppni í Frakklandi fyrr í mánuðinum.

Sigurður Óli Þorleifsson og Ólafur Ingvar Guðfinsson verða aðstoðarmenn Kristins í Mosxku en fjórði dómari verður Egill Már Markússon. 

Leikur Spartak og Leverkusen er í E-riðli keppninnar en riðlakeppnin hefst á morgun. Þá mætir Spartak liði Toulouse í Frakklandi en Leverkusen fer í heimsókn til Züric í Sviss.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×