Golf

Birgir verður með á Mallorca mótinu

Birgir Leifur Hafþórsson verður á meðal keppenda á opna Mallorca mótinu í golfi sem hefst á fimmtudaginn, en það er liður í Evrópumótaröðinni.

Birgir fékk að vita af þessu í dag og verður nokkurn tíma að koma sér á svæðið, svo hann mun líklega missa af æfingahringnum fyrir keppnina. Sigri hann í keppninni mun hann tryggja sé þáttökurétt á mótaröðinni næstu tvö árin og sæti á meðal fimm efstu tryggir sæti inn á lokastig úrtökumótsins.

Á mótinu um helgina verða margir af sterkustu kylfingum heims og þar á meðal má nefna Sergio Garcia, Paul McGinley og Thomas Björn.

Frétt af kylfingur.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×