Körfubolti

Beinar útsendingar frá NBA hefjast í nótt

Nýliðinn Kevin Durant verður væntanlega í sviðsljósinu hjá Seattle í nótt
Nýliðinn Kevin Durant verður væntanlega í sviðsljósinu hjá Seattle í nótt NordicPhotos/GettyImages

NBA TV sjónvarpsstöðin á Fjölvarpinu byrjar í nótt beinar útsendingar frá æfingatímabilinu í NBA deildinni, en deildarkeppnin sjálf hefst í lok þessa mánaðar. Í nótt verður leikur Sacramento og Seattle sýndur beint klukkan 2 eftir miðnætti.

Annað kvöld verður leikur Utah og Milwaukee á dagskrá klukkan 1 eftir miðnætti og á fimmtudaginn tekur New York á móti Maccabi Tel Aviv klukkan 23 um kvöldið.

Nánari upplýsingar um útsendingar NBA TV verða birtar hér á Vísi.is fljótlega.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×