Fótbolti

Stoichkov rekinn frá Celta Vigo

NordicPhotos/GettyImages

Búlgarski þjálfarinn Hristo Stoichkov var í dag rekinn frá spænska félaginu Celta Vigo eftir sex mánuði í starfi. Spænska pressan er þegar farin að orða Juan Ramon Lopez Caro við starfið. Celta er í 11. sæti spænsku 2. deildarinnar með 10 stig eftir 7 leiki.

Stoichkov, sem er almennt talinn besti knattspyrnumaður í sögu Búlgaríu, var áður landsliðsþjálfari Búlgaríu. Hann tók við Celta í apríl og var þá ætlað að forða liðinu frá falli úr 1. deildinni. Það tókst ekki og ekki hefur gengið verið glæsilegt í 2. deildinni heldur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×