Viðskipti erlent

Óbreyttir stýrivextir í Bretlandi

Mervyn Brown, bankastjóri Englandsbanka, og Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands.
Mervyn Brown, bankastjóri Englandsbanka, og Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands. Mynd/AFP

Stjórn Englandabanka ákvað í dag að halda stýrivöxtum óbreyttum í 5,75 prósent. Þetta er í takt við spár sérfræðinga, sem segja bankann vilja skoða áhrif óróleika á fjármálamörkuðum á breskt efnahagslíf áður en næstu skref verði tekin.

Seðlabankinn hækkaði stýrivexti síðast um 25 punkta í júlí.

Bankinn hefur engu að síður verið undir miklum þrýstingi það sem af er árs að lækka stýrvextina til að koma í veg fyrir að hagvöxtur dragist saman á næsta ári.

Bankinn hefur sömuleiðis barist við að draga úr verðbólgu sem á vordögum fór í 3,0 prósent. Mjög hefur dregið úr verðbólgunni vegna aðgerða bankans og stendur hún nú í 1,8 prósenti, sem er 0,2 prósentustigum undir verðbólgumarkmiðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×