Körfubolti

Jackson gerður að fyrirliða Warriors

Jackson sýnir nýjasta húðflúrið sitt, þar sem hann setur andlegt líferni sitt í samhengi við harðan raunveruleikann
Jackson sýnir nýjasta húðflúrið sitt, þar sem hann setur andlegt líferni sitt í samhengi við harðan raunveruleikann AP

Villingurinn Stephen Jackson hjá Golden State Warriors hefur nú verið gerður að fyrirliða liðsins ásamt þeim Baron Davis og Matt Barnes. Jackson mun missa af fyrstu sjö leikjum liðsins í deildarkeppninni sem hefst í lok þessa mánaðar þar sem hann verður í banni.

Þrátt fyrir vandræði Jackson utan vallar - og stundum innan hans líka - er Don Nelson þjálfari hrifinn af framlagi hans og leiðtogahæfileikum. "Við leggjum mikið traust á Jack sem leiðtoga og allir sem spilað hafa með honum vita hvernig hann er," sagði Don Nelson.

Jackson var dæmdur í sjö leikja bann af NBA deildinni í sumar eftir að hann var dæmdur til 100 tíma samfélagsþjónustu og 5,000 dollara sektar fyrir að skjóta af byssu og stofna til óláta fyrir utan súlustað í Indianapolis í fyrra.

Jackson segist nú hafa sagt skilið við bullið og frumsýndi nýtt húðflúr þegar hann mætti til æfingabúða á dögunum. Flúrið má sjá á myndinni hér fyrir ofan en það er mynd af höndum sem biðja til Guðs - og halda á skammbyssu.

"Ég vona að ég eigi aldrei eftir að þurfa að nota byssu aftur," sagði Jackson þegar hann var beiðinn að útskýra listaverkið.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×