Fótbolti

Real Madrid aftur á toppinn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Raúl kom Madrídingum á bragðið í kvöld.
Raúl kom Madrídingum á bragðið í kvöld. Nordic Photos / AFP

Real Madrid tyllti sér aftur á topp spænsku úrvalsdeildarinnar með 2-0 sigri á Real Betis nú í kvöld.

Staðan var jöfn í hálfleik en á 67. mínútu dæmdi dómari leiksins ansi vafasamt víti sem Raúl skoraði úr af öryggi.

Varamaðurinn Julio Baptista innsiglaði svo sigurinn á 85. mínútu með glæsilegu marki úr bakfallsspyrnu.

Real Madrid er enn taplaust í deildinni með þrettán stig eftir fimm leiki.

Betis er hins vegar enn án sigurs og situr í átjánda sæti deildarinnar með tvö stig. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×