Fótbolti

Calderon fékk óblíðar móttökur í New York

Ramon Calderon var í haldi í nokkrar klukkustundir í New York
Ramon Calderon var í haldi í nokkrar klukkustundir í New York NordicPhotos/GettyImages

Forseti Real Madrid lenti í heldur óskemmtilegri reynslu þegar hann var á ferð á flugvellinum í New York í Bandaríkjunum á dögunum. Þar var honum haldið föngnum í nokkrar klukkustundir vegna gruns um að hann væri maður á svarta lista innflytjendaeftirlitsins.

Calderon var haldið á flugvellinum þangað til spænskum yfirvöldum tókst að útkljá þennan leiðinlega misskilning, en þar er mjög strangt eftirlit vegna heimsóknar George Bush Bandaríkjaforseta þar í borg þar sem hann sat fund Sameinuðu Þjóðanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×