Viðskipti erlent

Airbus: Sterkt gengi evru til vandræða

Fabrice Bregier, sem segir að allt stefni í uppsagnir hjá Airbus vegna styrkingar evru gagnvart öðrum gjaldmiðlum.
Fabrice Bregier, sem segir að allt stefni í uppsagnir hjá Airbus vegna styrkingar evru gagnvart öðrum gjaldmiðlum. Mynd/AFP

Stjórnendur evrópsku flugvélasmiðjunnar Airbus óttast að sterkt gengi evrunnar gagnvart öðrum gjaldmiðlum nú um stundir geti valdið því að fyrirtækið neyðist til að grípa til frekari uppsagna til að hagræða í rekstrinum.

Fyrirtækið hefur lent í miklum áföllum síðustu ár, ekki síst vegna framleiðslu á A380-risaþotunni en framleiðsla hennar hefur tafist í rúm tvö ár. Allt stefnir í að fyrsta þotan verði afhent síðar á árinu.

Vandræðin hafa leitt til þess að Airbus hefur sagt upp tugum þúsunda starfsmanna á árinu til að draga úr kostnaði.

Breska ríkisútvarpið hefur eftir Fabrice Bregier, aðstoðarframkvæmdastjóra Airbus, í dag að flugvélasmiðjurnar vanti einn milljarð evra til að ná upp í sparnaðaráætlun fyrirtækisins. Um helmingur af efniskostnaði Airbus greiðist nú um stundir í bandaríkjadölum og getur svo farið að fyrirtækið kasti evrunni að hluta fyrir bandaríkjadal með það fyrir augum að auka innkaup sín í dölum. Slíkt getur þýtt lægri rekstrarkostnað. Þetta felur í sér að dregið geti úr fjárfestingum Airbus.

Evrópsk útflutningsfyrirtæki hafa gripið í svipaðan streng enda stefnir í minni útflutning frá evrusvæðinu vegna sterkrar stöðu evrunnar gagnvart öðrum gjaldmiðlum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×