Viðskipti erlent

Spáir stýrivaxtalækkun snemma á næsta ári

Jean-Claude Trichet, bankastjóri evrópska seðlabankans. Sérfræðingur segir þrýst á að bankinn lækki stýrivexti snemma á næsta ári.
Jean-Claude Trichet, bankastjóri evrópska seðlabankans. Sérfræðingur segir þrýst á að bankinn lækki stýrivexti snemma á næsta ári. Mynd/AFP

Styrking evru gagnvart bandaríkjadal veldur því að evrópski seðlabankinn verði að breyta um stefnu og lækka stýrivexti. Þetta segir sérfræðingurinn Austin Hughes, hjá írska bankanum IIB. Gengi evru hefur haldið verið jafn sterk gagnvart bandaríkjadal og nú um stundir.

Hughes segir í samtali við vefútgáfu Business World, að bankinn verði að grípa til þessara ráða þar sem útlit sé fyrir minni útflutning frá evrulöndunum samhliða hræringum og óvissu á fjármálamörkuðum. Þá segir hann seðlabanka helstu landa á málin öðrum augum nú þegar óvissan ríki.

Hughes bendir ennfremur á, að þar sem allt stefni í að hagvöxtur verði minni en áður var spáð á evrusvæðinu sé evrubankanum ekki annað fært en að lækka stýrivexti og koma þannig bæði til móts við neytendur og útflytjendur, ekki síst þá sem flytja út vörur til Bandaríkjanna.

„Markaðsaðilar munu fljótlega spá því að seðlabankinn muni lækka stýrivexti fljótlega, jafnvel á fyrsta fjórðungi næsta árs," segir Hughes.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×