Viðskipti erlent

Samdrátturinn gæti haldið áfram

Ben Bernanke, seðlabankastjóri, sem óttast að þrengingum á bandarískum fasteignalánamarkaði sé ekki lokið.
Ben Bernanke, seðlabankastjóri, sem óttast að þrengingum á bandarískum fasteignalánamarkaði sé ekki lokið. Mynd/AFP

Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, sagðist eftir yfirheyrslu fyrir fjárlaganefnd bandaríska þingsins í dag, að hann teldi hræringar á fjármálamörkuðum vegna vanskila á fasteignalánamarkaði ekki að baki. Það hafi hins vegar verið rétt ákvörðun bankastjórnarinnar að lækka stýrivexti og setja fé inn í efnahagslífið til að auðvelda aðgengi að fjármagni.

Á meðal þess sem Bernanke taldi upp voru væntingar um frekari hræringar á lánamarkaði en hann telur líkur á að vanskilum muni fjölga á næstunni sökum hárrar vaxtakröfu. Vísaði hann til þess að vanskil á annars flokks fasteignalánum hafi enn fjölgað í júlí og muni þeim fjölga, að líkindum, enn frekari á næstunni. Hann bætti hins vegar við að fjármálamarkaðurinn hafi tekið ótrúlega vel við sér eftir niðursveifluna, sem þó eigi eftir að skila sér til lántakenda.

Ennfremur sagði hann, að bankinn myndi beita sér gegn því að hræringar sem þessar endurtaki sig í framtíðinni. 

Seðlabankinn lækkaði stýrivexti um 50 punkta á þriðjudag og standa stýrivextir þar í landi eftir það í 4,75 prósentum. Óttast var fyrir lækkunina að vanskilin gætu leitt til þess að draga myndi úr einkaneyslu og gæti það skila sér í minni hagvexti en ella.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×