Viðskipti erlent

Bandaríkjadalur aldrei lægri gagnvart evru

Gengi evru hefur aldrei verið jafnt sterkt gagnvart Bandaríkjadal og nú um stundir.
Gengi evru hefur aldrei verið jafnt sterkt gagnvart Bandaríkjadal og nú um stundir.

Gengi bandaríkjadals fór í sögulegt lágmark gagnvart evru í dag í kjölfar 50 punkta lækkunar á stýrivöxtum í Bandaríkjunum á þriðjudag. Þá hefur gengi evru styrkst eftir að evrópski seðlabankinn gaf í skyn að stýrivextir hækki á evrusvæðinu á næstu mánuðum.

Samkvæmt þessu kostar evran 1,4018 Bandaríkjadali.

Fjármálaskýrendur eru ekki á einu máli hvaða þýðingu þetta hafi. Í aðra röndina séu þetta góðar fréttir fyrir innflutningsfyrirtæki í evrulöndunum, ekki síst fyrir þá sem kaupa hrávöru og olíu, sem alla jafna greiðist í dölum, en vörurnar verða ódýrari vegna gengismunarins. Á móti getur þetta orðið til þess að draga úr útflutningi frá evrulöndunum, ekki síst til Bandaríkjanna.

Að sama skapi bendir breska ríkisútvarpið (BBC) á, að vegna lágs gengis Bandaríkjadals geti svo farið að fyrirtæki í Bandaríkjunum dragi úr innflutningi á vörum frá Asíu.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×