Viðskipti erlent

Fjárfestar glaðir á Wall Street

Nokkurar gleði gætti á fjármálamarkaði á Wall Street í Bandaríkjunum í dag eftir að stærsta fasteignalánafyrirtæki landsins greindi frá því að það hefði forðað sér frá gjaldþroti með vænni fjármögnun.
Nokkurar gleði gætti á fjármálamarkaði á Wall Street í Bandaríkjunum í dag eftir að stærsta fasteignalánafyrirtæki landsins greindi frá því að það hefði forðað sér frá gjaldþroti með vænni fjármögnun.

Gengi hlutabréfa hækkaði nokkuð á fjármálamörkuðum í Bandaríkjunum í dag eftir að Countrywide Financial, stærsta fasteignalánafyrirtæki landsins, greindi frá því að það hefði tryggt sér fjármögnun upp á 12 milljarða dala, jafnvirði 767 milljarða íslenskra króna. Gengi bréfa í skyndibitakeðjunni McDonald's og bílaframleiðandanum General Motors ruku í methæðir.

Fjárfestar ytra urðu afar bjartsýnir eftir að fyrirtækið greindi frá þessum fréttum enda ljóst að fjármögnunin muni forða fyrirtækinu frá tapi vegna mikils samdráttar vegna vanskila á annars flokks fasteignalánum.

Gengi bréfa í Countrywide tók stökkið í kjölfarið og hækkaði um heil fjórtán prósent, eða 2,31 dal á hlut.

Inn í hækkunina spila einnig tölur um atvinnuleysi, sem jókst minna en greinendur höfðu gert ráð fyrir í síðasta mánuði.

Dow Jones hlutabréfavísitalan hækkaði við þetta um eitt prósent, sem þykir mikið í Bandaríkjunum, og endaði í 13.424,88 stigum. Nasdaq-vísitalan hækkaði um 0,35 prósent og endaði í 2.601,06 stigum. S&P-vísitalan um 0,84 prósent og endaði í 1.483,95 stigum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×