Viðskipti erlent

Sveiflur á bandarískum hlutabréfamarkaði

Frá hamagangi á hlutabréfamarkaði í Bandaríkjunum.
Frá hamagangi á hlutabréfamarkaði í Bandaríkjunum. Mynd/AFP

Gengi hlutabréfa hefur sveiflast nokkuð eftir opnun fjármálamarkaða í Bandaríkjunum í dag. Þetta er nokkuð í takt við þróunina á mörkuðum í Evrópu. Fjárfestar þykja bjartsýnir á að seðlabanki Bandaríkjanna lækki stýrivexti vegna aðstæðna á fjármálamörkuðum og ætla síðar í dag að rýna í orð nokkurra af stjórnendum seðlabankans. Þar á meðal er Frederic Mishkin, hagfræðingur og einn af bankastjórum seðlabankans, sem vann skýrslu um íslenskt efnahagslíf í fyrra í félagi við Tryggva Þór Herbertsson, forstjóra Askar Capital.

Ásamt Mishkin munu tveir aðrir stjórnendur bankans ræða um efnahagslíf vestanhafs og stöðuna á fjármálamarkaði. Fjárfestar munu rýna vel í orð þeirra um stöðuna auk þess sem þeir vonast til að sjá þreifingar bankans í þá átt að lækka stýrivexti. Bankastjórnin hefur hins vegar ekkert gefið upp um næstu skref að öðru leyti en því að hann muni gera hvað hann geti til að koma til móts við fjármálafyrirtæki sem mörg hver glími við lausafjárskort, að sögn fréttastofunnar Associated Press.

Gengi hlutabréfa hefur bæði hækkað og lækkað eftir að markaðir opnuðu. Nú er staðan sú að Dow Jones hefur lækkað um rúm 0,2 prósent, Nasdaq lækkað um rúm 0,6 prósent og S&P lækkað um 0,5 prósent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×